Sniðmát Snjallborða
Allir Snjallborðar eiga sniðmát sem er hægt að breyta á auðveldan hátt. Þegar borði er hannaður er tekin ákvörðun um hvaða hlutum hans eigi að vera hægt að breyta. í Púls kerfinu er síðan hægt að breyta þessum eiginleikum t.d lit, bakgrunnsmynd og texta.
Þetta gerir auglýsendum mögulegt að tryggja að útlit þeirra Snjallborða sé alltaf ferskt og í takt við það efni sem fyrirtækið er með í birtingu hverju sinni. Einnig er mikill vinnusparnaður falinn í því að nýta sama borða en gera á honum smávægilegar breytingar til að hann komi sem best út.
Sem dæmi má nefna að nóg væri að breyta titli á skrunborða sem breytt er úr því að sýna vinsælustu vörur yfir í nýjustu vörur. Útitið helst það sama en eina sem breytist er að borðinn er látinn sækja önnur gögn og birta þannig aðrar vörur.