Púls Media ehf. leggur mikið upp úr því að tryggja öryggi notenda og persónuupplýsingar þeirra.
Vinnsla gagna
Púls er ábyrgðaraðili við vinnslu gagna, eins og skilgreint er í lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópusambandsins GDPR. Öll vinnsla persónuupplýsinga er sanngjörn og gagnsæ. Púls Media ehf. ábyrgist að nýta sér ekki upplýsingar um notendur á óábyrgan, óöruggan eða ólöglegan hátt.
Notandi getur haft samband við Púls hvenær sem er til að:
Óska eftir aðgangi að þeim upplýsingum sem Púls á um notanda
Leiðrétta upplýsingar sem Púls á um notanda
Eyða upplýsingum sem Púls á um notanda
Eða nýta sér önnur þau réttindi sem kveðið er á um í gildandi persónuverndarlögum.
Þegar notendur eru innskráðir í vefviðmót Púls Media ehf. kann að vera að hugbúnaðurinn safni tæknilegum upplýsingum um notkun þeirra, t.d. um tegund vafra, ip-tölu o.fl. Þessar upplýsingar eru aðeins notaðar til að bæta upplifun notenda af Púls, t.d. með því að bæta hönnun viðmóts eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum.
Ópersónugreinanlegar upplýsingar
Púls Media ehf áskilur sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar og nota sér þær í starfi félagsins, til dæmis í markaðsefni Púls Media.
Bókhaldsgögn
Bókhaldsgögn eru geymd í samræmi við lög og reglur um færslu bókhalds og varðveislu þess. Að þeim tíma liðnum er gögnunum eytt, upplýsingum á skilagreinum er þó ekki eytt. Endurskoðandi Púls Media ehf er Enor.
Annað almennt
Púls fylgir íslenskum lögum um meðferð persónuupplýsinga og ítrasta öryggis er gætt í meðferð þeirra. Þegar notandi kaupir auglýsingabirtingar í gegnum Birtingamarkað Púls er upplýsingum um notanda og fyrirtækið deilt viðkomandi auglýsingamiðli. Upplýsingarnar eru ekki notaðar í öðrum tilgangi.
Öll notkun á Púls er á ábyrgð notanda. Ef ágreiningur eða tjón verður vegna notkunar á Púls er það eigendum Púls Media ehf. algerlega óviðkomandi og án ábyrgðar. Notandi getur ekki krafið Púls um neins konar skaðabætur eða endurgreiðslur vegna notkunar á kerfinu.
Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.
Ef notandi hefur einhverjar frekari spurningar um það hvaða upplýsingar Púls safnar og geymir er hægt að hafa samband með því að senda tölvupóst á hallo@pulsmedia.is