Sjálfvirk framleiðsla auglýsingaefnis fyrir Bestu deildina
Snjallborðalausn Púls er notuð til þess að útbúa megnið af vefauglýsingum Bestu deildarinnar, 100% sjálfvirkt, fyrir innlenda vefmiðla, samfélagsmiðla og umhverfisauglýsingar.
„Head to head“ borðinn
Hugbúnaður Púls Media framleiðir sjálfvirkt rúmlega 4.200 „head2head“ borða fyrir sumarið 2022. 525 leikir í Bestu deild karla og kvenna í stærðum fyrir innlenda vefmiðla, samfélagsmiðla, strætóskýli og billboard.
Kerfið er beintengt við KSÍ og uppfærast borðarnir sjálfvirkt ef leikjum er t.a.m. frestað vegna landsleikja og bikarkeppna. Þegar leikjaskipulag úrslitakeppninnar í Bestu deild karla verður ljóst seinnihluta móts, framleiðir hugbúnaðurinn nýja borða sjálfvirkt.
„Head2head“ borðinn birtist eingöngu ef það eru 5 dagar eða minna í leik, annars taka aðrir borðar við.
„Næstu leikir“ borðinn
Næstu leikir snjallborðinn er hefðbundinn skrunborði í tveimur útgáfum sem sýnir næstu leiki í Bestu deild kvenna og karla. Borðinn uppfærist sjálfvirkt í nokkrum stærðum og er notaður á innlendum vefmiðlum. Landscape-skrunborðinn er hannaður og útfærður af Púls Media í „vídd“ þannig að efni hans (leikirnir) færast bakvið leikmanninn (módelið) þegar notandinn skrunar til hliðar. (prófaðu endilega ef þú ert í tölvu)
Efni fyrir samfélagsmiðla (Social assets)
Starfsmenn hjá Íslenskum Toppfótbolta hafa aðgang að hugbúnaði Púls Media og geta sótt auglýsingaefni sem kerfið framleiðir sjálfkrafa fyrir samfélagsmiðla.
Kerfið framleiðir borðana í stærðum fyrir hin ýmsu feed, Instagram stories ofl. Starfsmaður getur skoðað, endurhlaðið (t.d. ef leik hefur skyndilega verið breytt) og sótt auglýsingaefnið.
Púls hefur núþegar búið til sjálfvirka tengingu við auglýsingakerfi Facebook og Instagram og verður á næstu vikum byrjað að dreifa efni sem tengist leikjum sjálfvikrt á samfélagsmiðla.
Hverfisskipt dreifing í umhverfisskilti með reglum
Með Púls kerfinu getur Besta deildin búið til reglur fyrir ákveðnar auglýsingar og skilað og dreift sjálfkrafa öllu auglýsingaefni sem tengist t.d. heimaleikjum KR, þannig að þeir birtist eingöngu í strætóskýlum í Vesturbæ Reykjavíkur.
Næstu skref
Til stendur að nýta hugbúnað Púls Media til þess að framleiða sjálfkrafa annað efni sem tengist leikjum, úrslitum og tölfræði.