Nýtt ár og glæný uppfærsla er komin í loftið 🚀
Síðustu misseri höfum við verið að vinna í spennandi breytingum á áskriftarmöguleikum í Púls birtingakerfinu. Þessar breytingar eru gerðar með það fyrir augum að koma sem best til móts við okkar fjölbreytta notendahóp. Þær gera okkur jafnframt kleift að halda áfram að þróa nýja og sérhæfða fídusa í kerfinu sem þeir notendur sem gagn hafa af geta valið að greiða fyrir.
Vinsælasta áskriftarleiðin kallast Plúsinn, þar er öll almenn virkni kerfisins auk skrifta, sem leyfa notendum að birta auglýsingar á öllum vefmiðlum. Við Plúsinn er svo hægt að bæta tveimur aukapökkum. Skriftur+ gefa notendum aukna virkni fyrir skriftur, þ.e. stuðning fyrir umhverfisskilti auk nýrrar virkni sem er tímabil og yfirtaka í skriftum. Herferðir+ bæta svo við veðurstillingum, yfirtöku í herferðum og tímalínu í herferðum.
Tímalínan er glænýr fídus sem við kynnum nú samhliða þessum breytingum. Með henni geta notendur skoðað með sjónrænum hætti hvaða auglýsingar verða í birtingu á hverjum tíma.
Grunnverð fyrir Plúsinn verður 12 krónur fyrir hvert cpm frá og með 1. Febrúar 2024, þessi hækkun um 2 krónur er gerð til að halda í við þróun verðlags. Magnafsláttur mun halda áfram að gilda.
Við bjóðum einnig upp á Fríið, sem er ókeypis og einfaldari áskriftarleið. Hún hentar þeim sem ekki nota skriftur og kaupa sínar birtingar í gegnum Birtingamarkaðinn.
Þessar breytingar eru nú þegar aðgengilegar í kerfinu og þar er hægt nálgast nánari upplýsingar. Ef þið hafið einhverjar frekari spurningar eða vangaveltur varðandi þetta nýja fyrirkomulag þá viljum við endilega heyra frá ykkur!