Birtingamarkaður
Útiskilti í sjálfsafgreiðslu og þrír nýir vefmiðlar

Í dag kynnum við með stolti fjóra nýja miðla í Birtingamarkaði Púls. Þeir bætast við fjölbreytt úrval miðla þar sem þú kaupir birtingar í 100% sjálfsafgreiðslu.
Útimiðlar í sjálfsafgreiðslu, í fyrsta skipti á Íslandi
Þú getur núna keypt birtingar á umhverfis- og útiskjám Sýnileika beint í Birtingamarkaði Púls, á sama einfalda hátt og vefbirtingar. Engir samningar, engin símtöl, bara veldu pláss, tímabil og fjármagn og byrjaðu að auglýsa.
Sýnileiki
Eitt stærsta umhverfisskjáanet landsins: 52 skjáir í World Class stöðvum um allt land og 8 útiskjáir. Nær til fólks í ræktinni, þar sem viðvera er löng og athyglin til staðar, kjörið fyrir endurteknar birtingar til virks og heilsumeðvitaðs markhóps.
52 skjáir í World Class
8 útiskjáir
35.000+ birtingar á dag
Kaffið.is
Norðlenskur frétta- og afþreyingarvefur með slagorðið „heldur þér vakandi“. Fjallar um fréttir, fólk, íþróttir, menningu og skemmtun með sterka áherslu á Akureyri og Norðurland, kjörinn fyrir staðbundna dekkun á svæðinu.
Austurfrétt
Frétta- og mannlífsvefur sem fjallar um allt sem gerist á Austurlandi: fréttir, lífið, íþróttir og umræðan, með sjávarútveg og byggðamál sem rauða þráðinn. Beinasta leiðin að lesendum eystra, markhópi sem landsdekkandi miðlar ná síður til.
Auto.is
Vaxandi markaðstorg fyrir bíla þar sem fólk kaupir og selur ökutæki: bíla, mótorhjól, flutninga-, ferða- og vinnutæki. Notendur eru í virku kaupferli, kjörinn vettvangur fyrir bíla-, trygginga- og ökutækjaþjónustuauglýsingar.
Miðill í brennidepli: Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is hefur á síðustu vikum tekið stórt skref fram á við með nýrri innskráningarleið fyrir notendur og lifandi umræðum um kvikmyndir. Um 48.000 notendur heimsækja vefinn á mánuði.
Samhliða þessu hefur vefurinn bætt við nýjum auglýsingasvæðum og tekið stórt stökk þegar kemur að árangri birtinga, sem gerir kvikmyndir.is að enn áhugaverðari kosti fyrir auglýsendur sem vilja ná til áhugafólks um kvikmyndir og afþreyingu.
Kíktu í Birtingamarkaðinn og bættu þessum frábæru nýju miðlum við næstu birtingakaup.
















