Púls appið er komið út 💥
Nú höfum við gefið út Púls appið, fyrsta app sinnar tegundar á Íslandi. Með appinu er orðið enn einfaldara og þægilegra fyrir notendur að stjórna sínum birtingum á ferðinni. Appið hefur alla helstu virkni sem þið þekkið úr Púls auglýsingakerfinu og kemur sér vel þegar þarf að redda einhverju og tölvan er ekki við hendina.
Appið er aðgengilegt í App Store fyrir iOS og Google Play fyrir Android og hentar bæði fyrir síma og spjaldtölvur. Einnig er hægt að sækja appið fyrir Apple tölvur með M örgjörva.
Þetta er Beta útgáfa svo endilega látið vita hver upplifun ykkar er. Við tökum fagnandi á móti ábendingum um eitthvað sem mætti laga.