Verkstúdía
Snjallborðar
Rafmagnaðar Stuðkveðjur Orkusölunnar

Við kynnum með stolti nýjustu herferðina fyrir Orkusöluna – "Stuðkveðjur" í samstarfi við vini okkar hjá Birtingahúsinu. Þessi skemmtilega og rafmagnaða herferð gerði almenningi kleift að stjórna skilaboðum á umhverfisskiltum um allt land.
Með því að fara á vefsíðu Orkusölunnar gátu notendur sent persónulegar kveðjur eða almenn skilaboð sem birtust á auglýsingaskiltum víðsvegar um landið, en hægt var að velja það bæjarfélag eða hverfi sem skilaboðin birtust í.
Herferðin vakti mikla athygli og fjölmargir tóku þátt með því að senda inn jákvæð skilaboð. Stærstu útvarpsþættirnir, stjórnmálamenn, tónlistarfólk og fleiri þekktir einstaklingar nýttu tækifærið til að koma á framfæri stuðkveðjum sínum.
Hér má sjá dæmi um skemmtilegar kveðjur úr herferðinni:

Gagnvirkni í auglýsingaherferðum er ein af fjölmörgum lausnum sem Púls kerfin bjóða uppá, en annað dæmi um gagnvirkni í auglýsingarherfðum var t.d. verðlauna-herferðin "Elskum Öll fyrir NOVA". Með Púls kerfinu geta viðskiptavinir nýtt sér snjallar lausnir til að hámarka árangur auglýsinga sinna. Snjallborðar Púls Media gera framleiðslu og dreifingu auglýsinga einfaldari og árangursríkari, og gera notendum kleift að skila persónulegum og áhrifaríkum skilaboðum á einfaldan hátt.





















