Í fyrsta skipti á Íslandi: Auglýsingar á umhverfismiðlum í sjálfsafgreiðslu
Í Birtingamarkaði Púls hefur fram til þessa verið hægt að kaupa birtingar í sjálfsafgreiðslu á innlendum vefmiðlum. Nú hafa skjástandar frá Skjáauglýsingum einnig bæst við Birtingamarkaðinn. Þetta er í fyrsta sinn á Íslandi þar sem hægt er að kaupa birtingar á umhverfismiðlum í sjálfsafgreiðslu.
Skjáauglýsingar bjóða uppá einstaka umhverfismiðla sem hannaðir eru til að ná til gangandi vegfarenda. Í dag eru yfir 30 skjástandar staðsettir í stærstu og fjölsóttustu íþróttamannvirkjum, sundlaugum og líkamsræktarstöðvum landsins. Um 170 þúsund einstaklingar heimsækja þessa staði í samanlagt 10 milljón skipti á ári. Hægt er að skoða allar staðsetningar og frekari upplýsingar á heimasíðu Skjáauglýsinga.