Snjallborðar: Uppfærsla
Núna í sumar unnum við í Púls að risastórri uppfærslu á Snjallborða-virkninni okkar.
1. Reglur
Viðskiptavinir Púls sem hafa fjárfest í Snjallborða geta nú stýrt með einföldum hætti hvaða vörur birtast í hverri auglýsingu með svokölluðum reglum. Hægt er að sigta út vörur eftir öllum gagnapunktum sem hafa verið tengdir í Púls katalógnum.
Í dæminu hér að neðan er Lind fasteigna sala að auglýsa sérbýliseignir í Reykjavík og nýta Púls-reglurnar "inniheldur eitt eða fleiri af" til að velja 3 tegundir fasteigna og "inniheldur" til að velja hverfi í Reykjavík. Ótrúlega einfalt, en skilvirkt.



2. Breyta vöru (e. override)
Það getur komið fyrir að gögnin sem heimasíðan eða vefþjónustan skilar upp í Púls kerfið henti illa fyrir auglýsingar eins og t.d. í tilfellinu hér að neðan þar sem myndin af eigninni er lítil teikning. Nú er hægt að fara inn í hverja vöru fyrir sig í Púls kerfinu og breyta öllum gagnapunktum sem eiga að birtast í auglýsingum.
Hægt er að breyta myndum og öllum textasvæðum.
