Verkstúdía
Snjallborðar
Orkan nýtir tækni Púls Media til að þakka viðskiptavinum fyrir að styrkja Bleiku slaufuna

Auglýsingafyrirtækið Púls Media hefur nú í samstarfi við Orkuna þróað lausn sem gerir þeim kleift að birta styrktarupphæðir frá viðskiptavinum Orkunnar til Bleiku slaufunnar. Í dag renna 5 krónur af hverjum seldum lítra til Bleiku slaufunnar og hefur Púls Media hannað birtingamynd á auglýsingaefni Orkunnar þar sem viðskiptavinir á ferðinni geta séð þá upphæð sem rennur til Bleiku slaufunnar í hverri dælingu.
Stafrænir miðlar hafa verið nýttir til að setja fram auglýsingaefnið og er tilgangurinn að sýna fram á að margt smátt gerir eitt stórt.
Orkan rekur 72 sjálfsafgreiðslustöðvar um allt land og með þessari herferð er lögð áhersla á að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini í konum. Viðskiptavinir á ferðinni geta fylgst með birtingum í allan dag og séð upphæðir sem renna til málefnisins.




















