Þessi 2 fyrir 1 borði fyrir NOVA er tengdur beint við CMS kerfi fyrirtækisins og birtir stórar myndir af þeim söluaðilum sem bjóða upp á 2f1 tilboð fyrir viðskiptavini NOVA útfrá staðsetningum og tímasetningum.
Vöruspjöldin fljóta ofan á bakgrunnsmyndum og hreyfast í vídd þegar músin fer yfir vörurnar (í tölvu). Tilboðin birtast út frá staðsetningum og tímasetningum, til dæmis hádegistilboð í kringum hádegið o.s.frv.
Kostir Snjallborðans
Sjálfvirkni og tímasparnaður: Með beintengingu við CMS kerfi NOVA uppfærist Snjallborðinn sjálfkrafa, sem sparar tíma og fyrirhöfn við handvirkar uppfærslur auglýsinga.
Rauntíma upplýsingar: Snjallborðinn tryggir að upplýsingar um tilboðin séu alltaf uppfærðar og nákvæmar með beinni gagnatengingu og birtir tilboðin á réttum tímum.
Betri Árangur: Sjálfvirknin og rauntíma uppfærslurnar leiða til betri árangurs í auglýsingaherferðum, þar sem notendur sjá ekki alltaf sömu tilboðin og geta skrunað til að skoða fleiri tilboð.
Samstarfið
Samstarfið við Birtingahúsið og NOVA var frábært og skilaði sér í lausn sem uppfyllti allar kröfur og væntingar. Við erum stolt af því að hafa tekið þátt í þessu verkefni og skapað lausn sem er bæði áhrifarík og auðveld í notkun.