Verkefni sem við unnum fyrir Símann þar sem við framleiðum mikið af markaðsefni þeirra fyrir Ensku úrvalsdeildina. Snjallborðinn er svokallaður skrunborði sem birtir næstu leiki í beinni á Símanum Sport. Öll gögn í borðanum eru sótt og uppfærð sjálfkrafa í gegnum gagnatengingu við Símann.
Borðarnir aðlaga sig í ýmsar stærðir til að mæta þörfum bæði innlendra vefmiðla og umhverfisskilta, sem tryggir samfellda og stöðuga auglýsingaupplifun á mörgum miðlum. Þessi sjálfvirkni eykur ekki aðeins sjónrænt aðdráttarafl herferðanna heldur dregur einnig verulega úr tíma og fyrirhöfn sem þarf til að hanna sambærilega borða og dreifa þeim á viðkomandi miðla.
Samstarf okkar við Símann er frábært og auglýsingarnar hafa klárlega vakið verðskuldaða athygli og mælingar á árangri verið einstaklega jákvæðar.
Með því að nýta háþróaða eiginleika Snjallborða Púls getur Síminn Sport nú boðið upp á kraftmikla, vel hannaðar auglýsingar á Enska boltanum með 100% sjálfvirkni.