Við hjá Púls Media fengum það skemmtilega verkefni fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka að sýna heildarárangur söfnunarinnar í beinni á fjölda stætóskýla í Reykjavík í samvinnu við Datera.
Frá árinu 2007 hafa þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka getað hlaupið til styrktar góðu málefni. Heildarupphæð áheita sem hafa safnast í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka frá því áheitasöfnun hófst er nú komin yfir 1.064 milljónir. Tugir miljóna hafa safnast til á annað hundrað góðgerðafélaga í tengslum við hlaupið ár hvert. Upphæðirnar smáar sem stórar hafa skipt félögin miklu máli og verið notaðar í mörg þörf verkefni.
Við fórum þá leið að tengjast vefþjónustunni á bakvið hlaupastyrkur.is og sækja stöðuna á 15 sekúndna fresti, ef heildarupphæðin hafði hækkað síðan síðast þá töldum við frá fyrri upphæðinni upp í núverandi upphæð. Þannig gátum við gefið skyn að hvert framlag telur og skiptir máli ásamt því að skapa spennu við að sjá upphæðina hækka.