1. Inngangur
Púls Media ehf. („Púls“, „við“, „okkur“) leggur ríka áherslu á vernd persónuupplýsinga og virðingu fyrir friðhelgi einkalífs notenda.
Í þessari persónuverndarstefnu er útskýrt hvernig við:
söfnum persónuupplýsingum
vinnum úr þeim
geymum og verndum þær
og hvaða réttindi þú hefur
2. Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er:
Púls Media ehf.
Höfðabakka 9a
110 Reykjavík
hallo@pulsmedia.is
3. Hvaða upplýsingar við söfnum
Við söfnum persónuupplýsingum þegar þú notar Þjónustuna, bæði beint frá þér og með sjálfvirkum hætti.
3.1 Upplýsingar við innskráningu (Auðkenni)
fullt nafn
kennitala
símanúmer
Að auki sækjum við
upplýsingar um lögheimili úr þjóðskrá
Þessar upplýsingar eru notaðar til að
auðkenna þig
tryggja að raunverulegir einstaklingar noti þjónustuna
í einhverjum tilvikum sérsníða og birta efni og/eða auglýsingar út frá aldri, kyni og bæjarfélagi
3.2 Upplýsingar sem þú býrð til
Við söfnum upplýsingum sem þú velur að birta, svo sem:
færslur (e. posts)
athugasemdir (e. comments)
svör (e. comment replies)
myndir, myndbönd eða annað efni sem þú kannt að dreifa innan þjónustunnar
Athugaðu að efni sem þú birtir er almennt sýnilegt öðrum notendum þjónustunnar.
3.3 Notkunargögn (e. behavioural data)
Við söfnum upplýsingum um hvernig þú notar þjónustuna, t.d.:
hvaða efni þú skoðar
hvaða færslur þú skrifar eða svarar
hvaða efni þú líkar eða líkar ekki við
hvaða notendum, miðlum, hlaðvörpum, hópum eða öðru þú fylgir
Þessar upplýsingar eru notaðar til að:
bæta upplifun þína
stinga upp á notendum, miðlum, hlaðvörpum, hópum eða öðru til að fylgja innan þjónustunnar
sérsníða efni og/eða auglýsingar
3.4 Tæknilegar upplýsingar
Við söfnum einnig:
upplýsingum um tæki (tegund tækis, stýrikerfi ofl.)
einstökum auðkennum (t.d. 1st party tokens)
Við notum ekki IP-tölur til persónugreiningar nema þar sem það er nauðsynlegt af öryggisástæðum.
Hvernig við notum upplýsingar
Við notum persónuupplýsingar í eftirfarandi tilgangi:
4.1 Rekstur þjónustunnar
Til að:
veita aðgang að þjónustunni
sýna efni og virkni innan þjónustunnar
halda utan um notendareikninga
4.2 Sérsniðin upplifun
Til að:
raða efni í samfélagsmiðlastraum (e. feed)
sýna þér viðeigandi fréttir, hlaðvörp, notendur og annað efni
halda utan um notendareikninga
4.3 Auglýsingar
Til að:
birta auglýsingar
sérsníða auglýsingar út frá aldri, kyni, staðsetningu og notkunarmynstri.
Við deilum ekki persónugreinanlegum upplýsingum með auglýsendum
4.4 Öryggi og misnotkun
Til að:
koma í veg fyrir misnotkun
tryggja öryggi notenda
fylgja lögum og reglum
5. Lagagrundvöllur vinnslu
Við vinnum persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:
Notkunarskilmálar, til að veita þjónustuna
Lögmætir hagsmunir t.d. til að bæta þjónustu og tryggja öryggi
Lagaskylda þegar lög krefjast þess
Samþykki þegar við á fyrir t.d. ákveðna vinnslu eða stillingar
Þú skuldbindur þig til að:
virða lög og reglur
virða réttindi annarra
forðast meiðandi, ólögleg eða villandi efni
6. Miðlun upplýsinga
Við seljum ekki persónuupplýsingar
Við getum þó deilt upplýsingum með:
þjónustuaðilum (t.d. tæknilegum rekstraraðilum)
opinberum aðilum þegar lög krefjast
samstarfsaðilum í tenglum við rekstur þjónustunnar
Allir aðilar sem vinna með okkur eru bundnir trúnaði og persónuverndarkröfum.
7. Geymsla gagna
Við geymum persónuupplýsingar
á meðan þú ert með aðgang að þjónustunni
og eftir það eins lengi og nauðsynlegt er vegna t.d. lagaskyldna, öryggis eða rekstrarlegra þarfa.
8. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
fá aðgang að þínum gögnum
leiðrétta rangar upplýsingar
óska eftir eyðingu gagna
takmarka vinnslu
andmæla vinnslu
fá gögn afhent
Beiðnir skal senda á pulsinn@pulsinn.is
9. Öryggi gagna
Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að:
vernda gögn gegn óheimilum aðgangi
koma í veg fyrir gagnaleka
tryggja heilindi gagna
10. Almennt um sýnileika upplýsinga
Vegna eðlis þjónustunnar
er flest allt efni sýnilegt öðrum
er notkun tengd raunverulegu nafni
Við hvetjum notendur til að birta ekki viðkvæmar upplýsingar innan þjónustunnar
11. Breytingar á persónuverndarstefnu
Við getum uppfært þessa persónuverndarstefnu hvenær sem er. Ef breytingar eru verulegar verður notendum tilkynnt um breytingarnar
12. Samskipti
Fyrirspurninr varðandi persónuvernd skal senda á pulsinn@pulsinn.is
13. Lög og varnarþing
Þessir skilmálar lúta íslenskum lögum. Ágreiningur skal rekinn fyrir íslenskum dómstólum.