Um skilmálana
Þessir skilmálar („Skilmálar“) gilda um aðgang þinn að og notkun á Púlsinum („Þjónustan“), sem er í eigu og rekstri Púls Media ehf. („Púls“, „við“, „okkur“).
Með því að skrá þig inn eða nota þjónustuna samþykkir þú þessa skilmála í heild sinni. Ef þú samþykkir ekki skilmálana skaltu ekki skrá þig inn og nota þjónustuna.
Þjónustan
Púlsinn er stafrænn vettvangur sem:
safnar saman fréttum, myndböndum og hlaðvörpum frá íslenskum miðlum
gerir notendum kleift að taka þátt í umræðu undir eigin nafni
gerir notendum kleift að fylgja öðrum notendum, miðlum, hópum og hlaðvarpsþjónustum
birtir hefðbundnar og persónumiðaðar auglýsingar
Við áskiljum okkur rétt til að breyta, þróa eða hætta við hluta Þjónustunnar hvenær sem er, án fyrirvara.
Aðgangur og auðkenning
Til að nota Þjónustuna þarftu að:
auðkenna þig með rafrænum skilríkjum
veita réttar og uppfærðar upplýsingar
Þú berð ábyrgð á:
aðgangi að þínum reikningi
allri notkun sem á sér stað í gegnum hann
Þér er óheimilt að:
láta aðra nota þinn aðgang
stofna aðgang fyrir aðra án heimildar
Raunveruleg auðkenni
Púlsinn byggir á því að notendur séu auðkenndir með rafrænum skilríkjum.
Með notkun þjónustunnar samþykkir þú að:
efni sem þú birtir sé tengt við þitt raunverulega nafn
ekki sé heimilt að gefa sig út fyrir aðra
Við áskiljum okkur rétt til að:
hafna öðrum birtum nöfnum en þjóðskrárnafni notanda
takmarka aðgang ef misnotkun á sér stað
Efni notenda
Þú berð fulla ábyrgð á því efni sem þú birtir, þar á meðal:
færslum (e. posts)
athugasemdum (e. comments)
svörum (e. reply comments)
Þú skuldbindur þig til að:
virða lög og reglur
virða réttindi annarra
forðast meiðandi, ólögleg eða villandi efni
Óheimil notkun felur m.a. í sér:
hatursorðræðu eða áreitni
dreifingu rangra eða villandi upplýsinga
birtingu einkaupplýsinga annarra án heimildar
brot á höfundarétti annarra
hvers konar kynningu eða birtingu sem felur í sér ólöglega starfsemi
hvatningu til andlegs eða líkamlegs ofbeldis
Réttindi til efnis
Þú heldur eignarétti að efni sem þú birtir.
Með því að birta efni veitir þú Púls:
ótakmarkað, alþjóðlegt gjaldfrjálst leyfi til að hýsa, birta, dreifa og vinna úr efninu
Þetta er nauðsynlegt til að reka og þróa þjónustuna áfram.
Eftirlit og aðgerðir
Við áskiljum okkur rétt til að:
fjarlægja efni án fyrirvara
takmarka sýnileika efnis
loka aðgangi notenda, tímabundið eða varanlega
þegar:
skilmálar eru brotnir
lög krefjast þess
eða til að vernda þjónustuna og notendur
Auglýsingar
Þjónustan inniheldur auglýsingar.
Með notkun samþykkir þú að:
sjá auglýsingar
fá efni sem er sérsniðið að notkun þinni
Við:
deilum aldrei persónugreinanlegum upplýsingum með auglýsendum
notum gögn til að birta viðeigandi auglýsingar
9. Notkun gagna
Notkun persónuupplýsinga er ítarlega tilgreind í Persónuverndarstefnu Púls.
Við notum m.a.:
upplýsingar úr auðkenningu (nafn o.fl.)
hegðunargögn innan appsins
til að:
bæta þjónustu
sérsníða og birta efni og auglýsingar
10. Ábyrgðartakmörkun
Þjónustan er veitt „eins og hún er“.
Púls ber ekki ábyrgð á:
efni sem notendur birta
tjóni sem hlýst af notkun þjónustunnar
truflunum eða tæknivillum
11. Lokun aðgangs
Við getum lokað eða takmarkað aðgang án fyrirvara ef brot á skilmálum á sér stað eða notkun veldur áhættu fyrir þjónustuna.
12. Breytingar á skilmálum
Við getum uppfært þessa skilmála hvenær sem er. Ef breytingar eru verulegar verður notendum tilkynnt.
Áframhaldandi notkun telst samþykki.
13. Lög og varnarþing
Þessir skilmálar lúta íslenskum lögum. Ágreiningur skal rekinn fyrir íslenskum dómstólum.