Sýn og Púls samstarf: Birtingar á Bland.is í sjálfsafgreiðslu
Sýn, eigandi Bland.is, og auglýsingatæknifyrirtækið Púls hafa tekið höndum saman um að bjóða allar birtingar á stærsta markaðstorgi landsins í sjálfsafgreiðslu. Samstarfið byggir á Birtingamarkaði Púls, sem gerir auglýsendum kleift kaupa birtingar á fjölmörgum innlendum miðlum á örfáum mínutum í 100% sjálfsafgreiðslu.
Sniðmát og herferðastillingar
Auglýsendur geta annað hvort hlaðið upp sínu eigin efni eða valið úr sniðmátum og þannig stillt upp einföldum auglýsingum með eigin myndum, myndböndum, litum og merkjum.
Hægt er að stilla mismunandi auglýsingar eftir vikudögum, tímabilum og tímum innan dags. Þá er einnig hægt að stilla herferðir þannig að ákveðnar auglýsingar birtist útfrá því hvernig veður er úti, allt í rauntíma.
Stærsta markaðs- og sölutorg landsins með notendahóp í kauphugleiðingum
Bland.is hefur um árabil verið fyrsti viðkomustaður þeirra sem hyggjast kaupa eða selja notaðar vörur. Mánaðarlegir virkir notendur á Bland eru rúmlega 50 þúsund þar sem mest skoðuðu flokkarnir eru bílar, raftæki, fatnaður. Virkni notenda gerir vefinn að eftirsóttum vettvangi fyrir auglýsendur sem vilja ná til fólks í virkum kauphugleiðingum og í leiðinni styðja við endurnýtingu og hringrásarhagkerfið.
Jákvæð þróun á innlendum auglýsingamarkaði
Með lausnum erlendra auglýsingarisa á borð við Meta og Google hefur samkeppni á vefauglýsingamarkaði harðnað gríðarlega fyrir innlenda auglýsingamiðla. Með samstarfi Sýnar og Púls mun innlendur auglýsingamarkaður halda áfram að eflast með sambærilegum sjálfsafgreiðslu-lausnum og öflugri auglýsingatækni.
