Púlsinn er vettvangur fyrir umræðu, tengsl og miðlun efnis á milli raunverulegs fólks.

Hér getur þú lesið fréttir, tekið þátt í umræðu, skrifað færslur, fylgt öðrum notendum og hlustað á hlaðvörp, allt á einum stað. Markmið Púlsins er að skapa umhverfi þar sem fólk getur átt eðlileg, upplýst og ábyrg samskipti um málefni sem skipta það máli. 🤝

Við gerum okkur grein fyrir því að öll umræða hentar ekki öllum og að skoðanir geta verið ólíkar og jafnvel skarpar. Það er eðlilegur hluti af opnu samfélagi. Hins vegar má aldrei nota Púlsinn til að ráðast á aðra, grafa undan öryggi þeirra eða skapa fjandsamlegt umhverfi.

Púlsinn byggir á einfaldri hugmynd:

👉 Umræðan er betri þegar fólk stendur við orð sín.

Þess vegna eru allir notendur skráðir með sínu nafni og bera ábyrgð á því efni sem þeir birta.

Við biðjum þig að fylgja ekki aðeins bókstaf þessara reglna, heldur einnig anda þeirra, að stuðla að uppbyggilegri og heiðarlegri umræðu 😇

  1. Sýndu öðrum virðingu

Mundu að á bak við hvern notanda er manneskja.
Ógnanir, einelti, hatursorðræða eða skipulögð áreitni eru ekki liðin. Ekki er heimilt að ráðast gegn einstaklingum eða hópum á grundvelli persónueinkenna, stöðu eða viðkvæmni.

2. Taktu þátt af heilindum

Taktu þátt í umræðu þar sem þú hefur raunverulegan áhuga. Ekki er heimilt að:

dreifa ruslefni eða auglýsingum án samhengis

reyna að hafa áhrif á umræðu með blekkingum

  1. Virðing fyrir einkalífi

Virðing fyrir einkalífi annarra er grundvallaratriði.
Óheimilt er að:

birta persónuupplýsingar um aðra án heimildar

hvetja til áreitni

deila viðkvæmu efni eða efni í eigu annara án samþykkis

4. Vernd barna

Allt efni sem tengist börnum verður að uppfylla ströngustu kröfur. Óheimilt er að:

birta eða hvetja til birtingar efnis sem er kynferðislegt, ofbeldisfullt eða á annan hátt óviðeigandi gagnvart börnum

sýna af sér óviðeigandi hegðun gagnvart börnum